Stríðsrekstur Rússa í Úkraínu farinn að hafa töluverð áhrif á daglegt líf

Stríðsrekstur Rússa í Úkraínu er farinn að hafa töluverð áhrif á daglegt líf Moskvubúa sem hafa þurft að lifa við rúmlega 40 prósenta verðbólgu síðan innrásin hófst og olíuskort vegna gagnárása Úkraínuhers. Jón Björgvinsson, fréttaritari RÚV, er í Rússlandi. Margar bensínstöðvar í Moskvu eru lokaðar og við þær sem eru opnar er röðin löng. Skorturinn fremur en bensínverðið veldur Rússum áhyggjum. Rússland er, eða var, annar stærsti hráolíuframleiðandi heims og því hvorki háð Hormússundi né heimsmarkaðsverði. Aftur á móti hafa drónaárásir Úkraínuhers á olíuhreinsistöðvar verulega dregið úr framboði. Verðhækkanir eru einnig miklar og fyrir Tatíönu, sem er eftirlaunaþegi, er sífellt erfiðara að láta þau duga fyrir innkaupunum. „Núna verðum við reglulega að láta okkur nægja að borða samlokur.“
Stríðsrekstur Rússa í Úkraínu farinn að hafa töluverð áhrif á daglegt líf

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd