Til þess að hætta verði úr sögunni þarf að hafa verið landsig í Svartsengi í minnst sex mánuði, segir Kristín Jónsdóttir deildarstjóri jarðskjálfta og jarðhniks á Veðurstofunni. Landris heldur áfram í Svartsengi og nemur fjórum sentimetrum síðustu þrjá mánuði.Heildarhættumat Veðurstofunnar sem birt var í dag er óbreytt frá því sem verið hefur. Á hættumatskorti sem Veðurstofan gaf út í dag er hætta ennþá töluverð í Grindavík og er það samanlagt mat sjö hættuþátta.. Dregið hefur hættu á einum þætti sem áður var feitletraður, jarðfall ofan í sprungu.„Það eru örlitlar breytingar að við erum í rauninni að taka tillit til þeirra framkvæmda sem að hafa orðið í Grindavík að það er búið að vera að fylla upp í sprungur þar. Og það lækkar hættuna aðeins en ekki í rauninni nógu mikið til þess að breyt