Búlgarska fótboltasambandið hefur tilkynnt að Atanas Ribarski, þjálfari U19 landsliðsins, muni stýra A-landsliði Búlgaríu í þeim tveimur leikjum sem það á eftir að spila í glugganum. Aleksandar Dimitrov sagði upp á fréttamannafundi beint eftir markalaust jafntefli gegn Eistlandi í gær. Búlgaría mætir Íslandi á Laugardalsvelli á laugardag og mætir svo Lúxemborg.