Stjórn RÚV vill halda sniðgöngu á Eurovision áfram

Stjórn RÚV vill að Ísland taki ekki þátt í Eurovision nema Ísrael verði meinuð þátttaka. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar í dag.Diljá Ámundadóttir Zoëga, sem situr í stjórn RÚV, birti bókun af fundinum á Facebook-síðu sinni undir kvöld. Þar segir að sex af níu stjórnarmönnum hafi lagt fram bókun þar sem kemur fram að þeir beini því til útvarpsstjóra „að hann tilkynni EBU að Ríkisútvarpið taki ekki þátt í Eurovision árið 2027 nema Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni. Fyrri áskorun til EBU um að Ísrael verði vísað úr keppninni er ítrekuð og þess óskað að útvarpsstjóri komi þeirri ítrekun á framfæri.“Keppnin verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu 12. til 15. maí. Þetta er í fyrsta skipti sem Búlgaría sigrar og heldur keppnina.
Stjórn RÚV vill halda sniðgöngu á Eurovision áfram

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd