Þingmaður stjórnarandstöðunnar sem var einn þeirra sem fjármálaráðherra kallaði „þetta lið“ segist vart trúa því að hún þurfi enn á ný að „verjast óskiljanlegum brigslyrðum“ hæstvirts fjármálaráðherra í sinn garð. Hún hafni því sem hann haldi fram um að hún hafi sagt hallarekstur hvergi koma niður og krefst þess að ráðherra vísi þá til hvenær hún hafi gert það.