Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir það gleðifréttir að Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) hafi aukið við ráðgjöf sína um veiðar á norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna fyrir árið 2027.Í ráðgjöf ICES sem birt var í dag er aukið við ráðgjöf um afla í öllum þremur stofnum. Mest er aukning í makrílafla fyrir næsta ár en lagt er til að afli verði ekki meiri en tæplega 353 þúsund tonn. Það er um 102% hækkun á ráðgjöf frá því árið á undan.„Stóru jákvæðu fréttirnar eru makríllinn en allt er þetta í rétta átt og auðvitað má segja að þetta sé annars vegar mjög jákvætt bara fyrir þróunina í þessum mikilvægu nytjastofnum okkar,“ segir Hanna Katrín. „Það er bara mjög jákvætt en svo eru fréttirnar bara eitthvað sem skiptir miklu máli fyrir uppsjávarútgerðirnar og þjóðarbúið í heild.“ V