Valgerður snýr tímabundið aftur til starfa til að tryggja vinnufrið

Valgerður Rúnarsdóttir hefur fallist á að snúa tímabundið aftur til starfa sem framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ til að tryggja vinnufrið við endurskoðun samnings við Sjúkratryggingar Íslands.Þetta staðfestir Valgerður í samtali við fréttastofu. Hún snýr aftur til starfa á föstudag.Valgerður sagði starfi sínu lausu um síðustu mánaðamót og fór um leið í veikindaleyfi. Hún sakaði stjórn SÁÁ um óeðlileg afskipti af heilbrigðisstarfi samtakanna. Skömmu áður hafði forstjóri SÁÁ sagt upp störfum og Valgerður taldi sig ekki geta tryggt gæði þjónustunnar með nýjum utanaðkomandi forstjóra.Jón Áki Jensson var ráðinn tímabundið í stöðu Valgerðar en hann sagði upp í fyrradag eftir tvær vikur í starfi. Hann vísaði til þess að læknar þyrðu ekki að stíga inn í deildurnar og að ekki væri hægt að halda þjó
Valgerður snýr tímabundið aftur til starfa til að tryggja vinnufrið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd