12 umsagnir bárust við frumvarpsdrög um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum, sem voru sett inn í samráðsgátt stjórnvalda í byrjun mánaðar. Umsagnirnar eru frá einstaklingum og ýmsum samtökum, þar á meðal Mannréttindastofnun Íslands, Persónuvernd og Lögmannafélagi Íslands. Í mörgum þeirra er tekið undir mikilvægi þess að bregðast við þróun sem orðið hefur á skipulagðri glæpastarfsemi en í drögunum séu ýmsar grundvallarbreytingar sem taki til allra í stað þess að sníða þær að verkefninu og í þann streng er tekið í umsögn laganefndar Lögmannafélags Íslands.Frumvarpsdrög sem ætlað er að bregðast við þróun sem hefur orðið í skipulagðri glæpastarfsemi ganga of langt í að skerða réttindi allra í stað þess að sníða sértækar heimildir að verkefninu.Gunna