Alvarleg líkamsárás í íbúð í fjölbýlishúsi við Engihjalla í Kópavogi á mánudagskvöld er rannsökuð sem tilraun til manndráps.Karlmaður réðst á konu á heimili sínu og veitti henni lífshættulega stunguáverka. Hún lá um tíma á gjörgæslu en hefur verið útskrifuð þaðan.Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn segir rannsókn miða vel. Búið er að taka skýrslu af manninum og rætt verður við konuna síðar þegar hún hefur heilsu til.Engin tengsl eru á milli fólksins svo vitað sé. Karlinn, sem er rúmlega fertugur Íslendingur, var í gær úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna.