Rússneskir leyniþjónustumenn lögðu á ráðin um drepa Garry Kasparov, stórmeistara í skák, og Ilya Ponomarev, fyrrum þingmann á rússneska þinginu. Frá þessu greinir spænski fjölmiðillinn El Mundo.Fram kemur í umfjölluninni að bandarísk stjórnvöld hafi varað Kasparov við í sumar að menn tengdir rússnesku leyniþjónustunni vildu ráða hann af dögum. Eftir það fékk hann öryggisgæslu í fyrsta sinn síðan hann flutti til New York. Hann hefur gagnrýnt Pútín og stjórnvöld í Rússlandi harðlega og yfirgaf landið fyrir fullt og allt 2013.Rússneskir leyniþjónustumenn skipulögðu einnig morð á Ilya Ponomarev og segir í umfjöllun El Mundo að sá undirbúningur hafi verið lengra á veg kominn. Sá sem hafi átt að fremja ódæðið hafi hætt við.Rússneska leyniþjónustan skipulagði einnig morð í Vilníus í Litáen. Þar v