Starfsmaður Landsnets sem varð fyrir rafstraumi í vinnuslysi í Borgarfirði var flutt til Noregs í aðgerð eftir slysið. Starfsmaðurinn er kona á þrítugsaldri. Þetta herma heimildir Vísis og DV. Slysið átti sér stað á mánudag við tengivirki í Borgarfirði.Ekki fást upplýsingar um líðan konunnar.Andri Ólafsson, samskiptastjóri Landspítalans gat ekki staðfest að konan hefði verið flutt út en segir að sérsamningur sé á milli Landspítalans og Haukeland háskólasjúkrahússins í Bergen í Noregi til meðferðar á brunasárum.Jónas Hallgrímur Ottósson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir að lögreglurannsókn sé hafin á atvikinu. Þá sé Vinnueftirlitið einnig með slysið til rannsóknar.Jónas segir að lögregla rannsaki tildrög og orsakir slyssins en ekki sé hægt að veita upplýsingar