Íris Dögg Guðjónsdóttir, formaður fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga, telur ekki að útbreidd notkun sterkra geðlyfja tengist undirmönnun á hjúkrunarheimilum.Fjallað var um notkun sterkra geðlyfja á hjúkrunarheimilum í Kveik í gærkvöld. Þar kom fram að tæp 40 prósent íbúa hefðu fengið slík lyf í fyrra, margir án greiningar.Íris segir að umræða um notkun lyfjanna sé bæði þörf og gagnleg. Henni þótti umfjöllun Kveiks þó nokkuð einhliða. GOTT TÍMABUNDIÐ ÚRRÆÐI Íris Dögg segir að margt fólk með heilabilun geti fengið ofskynjanir og ranghugmyndir. Þá sé gott að geta gripið til lyfjameðferðar til að tryggja að fólki líði sem best.Hún segir að slíkt sé þó alltaf gert af fagfólki og að vel ígrunduðu máli.„Þetta er rosa gott tímabundið úrræði og þá þarf alltaf að íhuga og skoða til baka og endu