Lögregla í fjórum Evrópulöndum gerðu rassíur í bækistöðvum Vítisengla á yfir hundrað stöðum vegna gruns um peningaþvætti, fjársvik, vopnalaga- og ofbeldisbrot, auk annarra brota.Þýska lögreglan sagðist í tilkynningu hafa ráðist í aðgerðina ásamt yfirvöldum í Belgíu, Hollandi og Búlgaríu og að rannsóknin beinist að 71 liðsmanni mótorhjólagengis, sem þýskir fjölmiðlar herma að sé Vítisenglar.Á annan tug voru handteknir og lögregla lagði hald á eignir að andvirði tæplega fimmtíu milljóna evra; jafnvirði yfir sex milljarða króna.Þýska dagblaðið Bild greinir frá því að rannsóknin hafi staðið í rúmlega fjögur ár, í kjölfar skotárásar í Duisburg vorið 2022 sem var rakin til uppgjörs milli hópa.