„Fólki er oft sama um peninginn af því það eignaðist vin“

Fólki sem verður fyrir ástarsvikum á netinu er oft sama um peningana sem það tapar vegna þess að samskipti við annað fólk skiptir það meira máli. Dæmi eru um að Íslendingar hafi tapað tugum milljóna á slíkum svikum, sem oft eru kennd við Nígeríusvindl, en að þeir sætti sig samt við það vegna samverunnar á netinu með annarri manneskju. Þetta segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn og yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.  „Fólki er oft sama um peninginn af því það eignaðist vin,“ segir hún.Slík svikamál er algeng á Íslandi eins og í mörgum öðrum löndum í heiminum segir Elín Agnes. Hún segir að áætlað fjárhagstjón Íslendinga vegna slíkra netglæpa hafi verið 427 milljónir króna á fyrsta helmingi þessa árs. Þetta er mikil aukning á milli ára
„Fólki er oft sama um peninginn af því það eignaðist vin“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd