Ríkisstjórnarinnar að ákveða viðbrögð við málshöfðun ESA

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það sé ríkisstjórnarinnar að ákveða hvernig hún bregðist við ákvörðun ESA um að höfða mál gegn Íslandi vegna bókunar 35. Hún svarar því ekki hvort Sjálfstæðisflokkurinn greiði atkvæði með eða á móti frumvarpi utanríkisráðherra um innleiðingu bókunarinnar.Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, greindi frá því í dag að hún hefði höfðað mál gegn íslenskum stjórnvöldum vegna þess að Ísland hefði ekki innleitt skuldbindingar sínar með fullnægjandi hætti.„Þessi ákvörðun kemur mér ekki á óvart miðað við hvernig þetta mál hefur þróast á síðustu misserum og samkvæmt fyrri afstöðu ESA til málsins,“ segir Guðrún.„Þau hefðu getað klárað þetta mál á síðasta þingi. Það var mælt fyrir málinu á vorþinginu 2025 og málið fór til nefndar. Það hefði verið r
Ríkisstjórnarinnar að ákveða viðbrögð við málshöfðun ESA

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd