Forsætisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre, segir framlög norska ríkisins til hugveitu með tengsl við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein hafa verið talin til góða fyrir Noreg. Forsætisráðherrann sat fyrir svörum hjá þingnefnd í morgun vegna fjarframlaganna á tíma hans sem utanríkisráðherra.Tveir núverandi og níu fyrrverandi ráðherrar í Noregi sitja í vikunni fyrir svörum þingnefndar sem rannsakar menningu innan utanríkisþjónustunnar. Þetta var ákveðið eftir að tengsl norskra ráðamanna við kynferðisbrotamanninn Epstein komu í ljós. Fundur nefndarinnar ber yfirskriftina Stjórn og menning í utanríkisþjónustunni og er opinn. AUKINN STUÐNINGUR ÞEGAR STØRE VAR UTANRÍKISRÁÐHERRA Bandaríska hugveitan International Peace Institute fékk yfir 130 milljónir norskra króna frá norska ríkinu frá 199