Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var upplýst um málsókn ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, gegn íslenska ríkinu vegna bókunar 35 um evrópskra efnahagssvæðið.ESA greindi frá því í morgun að stofnunin hafi ákveðið að fara í mál við íslenska ríkið vegna bókunar 35 vegna þess að íslensk lög tryggi ekki að innleiddar EES reglur haldi gildi sínu til fulls, eins og bókunin kveði á um.Þorgerður Katrín segir það ekki koma á óvart þar sem Íslendingar hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar. Hún bindur vonir við að málið verði klárað á Íslandi.„Mér finnst meiri bragur að því að við Íslendingar klárum málið á okkar eigin forsendum. Að málið verði klárað í höfuðborginni en ekki Lúxemborg.“Viðtal við Þorgerði Katrínu má nálgast í spilaranum hér að ofan.