Línubátar Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa veitt töluvert af stóru brosmu að undanförnu. Sagt er engu líkara en hann sé að dreifa sér með suðurströndinni. Til prófunar er að fletja fiskinn og salta, en áður var hann seldur á markaði eða þurrkaður.