Ekkert blóð fannst í bifreið manns sem ákærður er fyrir að hafa orðið félaga sínum að bana í heimahúsi á Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra. Mikið blóð úr honum fannst á vettvangi manndrápsins, sem hann yfirgaf á bíl sínum eftir að hafa verið í heimsókn hjá hinum látna föstudagskvöldið 28. nóvember.Þetta er meðal þess sem kom fram í skýrslutökum yfir lögreglumönnum á öðrum degi aðalmeðferðar málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag.Georgios Ntentes frá Grikklandi er gefið að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést.Fyrsti lögreglumaðurinn sem gaf skýrslu fyrir dómi í dag var sá sem kom fyrstur á vettvang á hádegi 30. nóvember. Hann sagðist hafa fengið tilkynningu