Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segist ekki hafa vitað af skilaboðum Guðbjargar Ingunnar Magnúsdóttur, eiginkonu sinnar, til Guðmundar Inga Kristinssonar, þar sem hún segir Guðmund hafa tvo kosti; afsögn eða stríð.Guðbjörg Ingunn var aðstoðarmaður Guðmundar Inga og sendi honum skilaboðin í aðdraganda afsagnar hans. RÚV fjallaði um skilaboðin í síðustu viku.Ragnar Þór segist ekki hafa vitað af skilaboðunum. Samskipti Guðmundar Inga og Guðbjargar Ingunnar hafi verið í trúnaði þeirra á milli.Stjórnarandstaðan sótti hart að Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, í kjölfar þess að skilaboðin voru birt og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, krafðist afsagnar ráðherra. Ragnar Þór segir viðbrögð stjórnarandstöðunnar ofsafen