Byrjað að hleypa heitu vatni á Grafarvog

Veitur eru byrjaðar að hleypa heitu vatni á hús í Grafarvogi. Lokað var fyrir heita vatnið frá miðnætti. Viðgerð og endurnýjun búnaðar lauk skömmu fyrir klukkan tíu. Búast má við að fullur vatnsþrýstingur verði kominn á alls staðar kringum hádegisbil. Ef vart verður við leka utanhúss er bent á að hringja tafarlaust í neyðarsíma Veitna 516 6161. Verði leki innanhús er bent á að hringja strax í pípulagningamann.Stífla eða leki geta komið í ljós eftir að vatni er hleypt á.RÚV / Rúnar Snær Reynisson
Byrjað að hleypa heitu vatni á Grafarvog

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd