ESA, Eftirlitsstofnun EFTA hefur hafið málaferli gegn íslenska ríkinu vegna bókunar 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. ESA greindi frá þessu í dag, en undirbúningur að málaferlunum hefur staðið í nokkurn tíma.Málinu hefur nú verið vísað til EFTA-dómstólsins í Lúxemborg, og verður rekið þar sem svokallað samningsbrotamál.Í fréttatilkynningu sem ESA sendi frá sér í morgun segir að þetta skref hafi verið tekið „...þar sem íslensk lög tryggja ekki að innleiddar EES-reglur haldi gildi sínu til fulls líkt og Bókun 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið gerir kröfu um.“Í tilkynningu ESA kemur fram að stofnunin hafi fyrst hreyft við þessu máli árið 2012. Svokallað samningsbrotamál vegna bókunar 35 var opnað hjá ESA árið 2017, og stofnunin gaf út rökstutt álit í september 2020.„ESA