Alls barst 3.081 símtal í eitrunarsíma Eitrunarmiðstöðvar Landspítalans í fyrra og fækkaði þeim lítið eitt frá árinu á undan. Það sem af er þessu ári hefur símtölunum fjölgað eitthvað á nýjan leik, m.a. vegna lítils háttar fjölgunar fyrirspurna um áhrif sveppa.