Bandaríkjamenn ganga senn að kjörborðinu og kjósa til þings. Hinn 3. nóvember eru öll 435 sætin í fulltrúadeildinni í húfi og 35 sæti af hundrað í öldungadeildinni.Demókratar hafa lagt ofuráherslu á að ná stjórn á annarri eða báðum deildum þingsins til að geta staðið í vegi fyrir ætlunum Donalds Trump forseta.Fulltrúadeildin getur til dæmis sett á laggirnar ýmis konar rannsóknarnefndir sem mega kalla stjórnarliða til skýrslutöku og heldur auk þess um pyngju alríkisstjórnarinnar. Þar að auki getur fulltrúadeildin kært forseta til embættismissis, eins og gerðist á fyrra kjörtímabili Trumps. ÖLDUNGADEILDIN Í AUGSÝN FYRIR DEMÓKRATA Það eru gömul sannindi og ný að flokkur forsetans kemur illa út úr kosningunum á miðju kjörtímabili hans. Sem dæmi má nefna að í 38 af síðustu 42 miðkjörtímabils