Njósnastofnun Suður-Kóreu telur að Volodymyr Zelensky hafi greint frá flutningi tveggja norðurkóreskra stríðsfanga frá Úkraínu til Suður-Kóreu til þess að auka almennan stuðning þarlendis við vopnasendingar til Úkraínuhers.Suðurkóreskur þingmaður gerði þessu skóna í gær og annar upplýsti að stríðsfangarnir hefðu komið til landsins um miðjan september. Þeir væru almennt við góða heilsu og hefðu sjálfir fallist á flutning þangað.Þar vildu þeir fá tækifæri til að „lifa eðlilegu lífi“, eins og það var orðað. Deilan gæti orðið til að tefja ákvörðun Suður-Kóreumanna um að senda Úkraínumönnum varnarvopn enda hafa þeir verið tregir til þess vegna banns við sölu árásarvopna til ríkja sem standa í stríði.Zelensky sagði frá flutningi hermannanna tveggja frammi fyrir allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna