Minnst einn drepinn í eldflauga- og drónaárás á Kyiv

Slökkvilið glímir við eld eftir dróna- og eldflaugaárás Rússlandshers 28. september.EPA / SERHII DILINAð minnsta kosti einn var drepinn og þrír til viðbótar særðust í eldflauga- og drónaárás Rússlandshers á úkraínsku höfuðborgina Kyiv og nærliggjandi héruð í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu hermálayfirvalda í Kyiv.Innviðir eru sagðir hafa laskast í árásunum ásamt íbúðarhúsum, vöruskemmum og farartækjum. Borgarstjórinn Vitali Klitschko sagði í færslu á Telegram fyrr í nótt að eldar loguðu í íbúðahverfi í Kyiv.
Minnst einn drepinn í eldflauga- og drónaárás á Kyiv

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd