Makríll er einn þeirra deilistofna í Norður-Atlantshafi sem mörg strandríki gera tilkall til.RÚV / Rúnar Snær ReynissonAlþjóðahafrannsóknaráðið leggur til að heildarmakrílafli næsta árs verði tæp 352 þúsund tonn. Það er 102% hækkun frá síðasta ári en þá hljóðaði ráðgjöfin upp á rúm 174 þúsund tonn. Ástæðan er sú að hrygningarstofn makrílsins er nú yfir varúðarmörkum.Mikill styr hefur staðið um makrílinn en hann er einn þeirra deilistofna í Norður-Atlantshafi sem margar þjóðir gera tilkall til. Þau strandríki sem veiða makríl eru, auk Íslands, Færeyjar, Noregur, Bretland, Grænland og Evrópusambandið. Ríkin hafa átt erfitt með að koma sér saman um það hvernig skipta skuli kvótanum og samanlagt veiða strandríkin að jafnaði töluvert umfram vísindaráðgjöf.