Ný rannsókn sýnir að aldur hjartaþega segi meira til um hjartaheilsu frekar en aldur hjartagjafa. Nature greinir frá en rannsóknin er enn óbirt og óritrýnd.Þannig lækkar líffræðilegur aldur hjarta sem grædd eru úr eldri einstaklingi í yngri eftir ígræðslu. Að sama skapi hækkar líffræðilegur aldur hjartans sé það fært úr yngri einstaklingi í eldri.Með líffræðilegum aldri er átt við uppsafnaðan frumuskaða yfir líftíma hjartans. RANNSÓKNIR Á BÆÐI MÚSUM OG MÖNNUM Jesse Poganik fer fyrir teymi sem rannsakar öldrun við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Í fyrri hluta rannsóknarinnar græddi teymið misgömul viðbótarhjörtu í mýs á mismunandi aldri. Nokkrum mánuðum seinna voru mýsnar drepnar og mælingar gerðar á metýleringu erfðaefnis þeirra. Metýleringu erfðaefnis má nota til að ákvarða líffræðile