Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur valið flugvélaframleiðandann Boeing til að smíða næstu kynslóð orrustuþotna fyrir sjóherinn samkvæmt samningi sem metinn er að verðmæti 20 milljarða bandaríkjadala, eða um 2.400 milljarða íslenskra króna, að því er bandarískir embættismenn greindu frá fyrr í kvöld.