Ísland vann 0-3 útisigur á Lúxemborg í C-deild Þjóðadeildarinnar fyrr í kvöld. Ísland er á toppi riðilsins nú þegar liðin fjögur hafa öll leikið tvo leiki. Ísak Bergmann Jóhannesson var að vonum ánægður með úrslit kvöldsins er hann ræddi við Fótbolta.net eftir leik.