Lögmönnum er ekki skylt að veita skattayfirvöldum upplýsingar um umbjóðendur sína sem þegið hafa skattráðgjöf, ef beiðnin gengur lengra en brýn nauðsyn og meðalhóf krefjast. Þetta er niðurstaða EFTA-dómstólsins í dag. Í niðurstöðum dómsins segir að 36. gr. EES-samningsins girði fyrir að lögmönnum sé skylt að veita slíkar upplýsingar.Dómsmálið má rekja til máls sem er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Þar krafðist Skatturinn þess að lögmannsstofa afhenti skrá yfir alla umbjóðendur sína sem þegið hafa skattráðgjöf eða aðra þjónustu á árunum 2019 til 2024.Í tilkynningu frá Lögmannafélagi Íslands segir að félagið taki undir forsendur dómsins. Jafnframt vænti félagið þess að dómurinn brýni fyrir stjórnvöldum, jafnt skattyfirvöldum sem öðrum, mikilvægi þess að virða grundvallarhlutverk l