Heilbrigðisþjónusta á vegum félagasamtaka barn síns tíma

Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala telur læknisþjónustu af hálfu félagasamtaka vera barn síns tíma. Útlit er fyrir að Landspítali hlaupi tímabundið undir bagga með SÁÁ í læknisþjónustu á Vogi.Aðeins 14 sjúklingar eru inniliggjandi á Vogi vegna manneklu en þar eru 45 rými. Enginn var lagður inn á Vog í síðustu viku og enn hafa engir skjólstæðingar verið innritaðir. Skortur á læknum, uppsagnir og veikindaleyfi starfsfólks hefur orðið til þess að mun færri fá meðferð en vera ætti.Jón Áki Jensson, framkvæmdastjóri lækninga, sagði upp í gær eftir einungis tvær vikur í starfi. Hann var ráðinn inn tímabundið eftir að forveri hans sagði starfi sínu lausu eftir að fyrrverandi forstjóri hætti. Jón sagði í samtali við fréttastofu að tími hans í starfi hafi verið vægast sagt krefjandi og fullreynt
Heilbrigðisþjónusta á vegum félagasamtaka barn síns tíma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd