„Þetta er skelfilegt, alveg hreint, skelfilegt. Þetta ætlar engan endi að taka, sko, einhvern veginn,“ segir Þórdís Hreggviðsdóttir um hækkun verðbólgu. Verðbólga jókst fjórða mánuðinn í röð og stendur nú í 5,9%.Fréttastofa tók vegfarendur tali í Bónus í Skeifunni.„Mér finnst þetta alls ekki gott fyrir heimilin og alls ekki gott,“ segir Laufey Vilmundardóttir.Hvað myndirðu vilja sjá gerast í því? „Bara eitthvað almennilegt fyrir fólkið í landinu, það er varla hægt að búa hér lengur,“ svarar hún.„Mér finnst að stjórnvöld eigi að stíga svolítið fastar inn í og gera eitthvað,“ segir Þórdís.Viðmælendur fréttastofu í matvöruverslun sögðu að stjórnvöld þyrftu að gera meira til að bregðast við hækkand verðbólgu. Formaður VR er ekki bjartsýn á að kjarasamningar haldi.Fréttastofa hitti Höllu Gunnar