„Myndmálið hentaði vel til þess að segja frá Grímu og bannhelgi hennar. Í myndinni koma fram ýmsir sem höfðu sögur að segja af hulduöflum í Hegranesi, en ég ræddi líka við fólk sem hafði upplifað þetta en vildi ekki koma fram opinberlega, sem maður virðir,“ segir Árni Gunnarsson kvikmyndagerðarmaður.