Eistar saka Rússa um tilraun til íkveikju í vopnafyrirtæki

Forsætisráðherra Eistlands, Kristen Michal, sakaði rússnesku leyniþjónustuna í dag um að bera ábyrgð á tilraun til íkveikju í vopnaframleiðslufyrirtæki í Tallinn um miðjan ágúst. Í fyrirtækinu, Milrem Robotics, eru framleiddir róbótar sem Úkraínumenn nýta á vígvellinum í baráttu sinni gegn innrásarher Rússlands.Þrír Lettar, sem hafa búið í Rússlandi, voru handteknir í Lettlandi, grunaðir um aðild að málinu. Þeir voru framseldir til Eistlands á dögunum.Rússnesk stjórnvöld hafa verið sökuð um slíkar árásir undanfarið á bandamenn Úkraínu, þar á meðal tilraun til drónaárásar á flugvöll í Leipzig í Þýskalandi þar sem úkraínskar flutningaflugvélar voru.Yfirmaður öryggisþjónustu Eistlands, Margo Palloson, sagði við fjölmiðla í dag að leyniþjónustustofnanir í Rússlandi beini athygli sinni í auknum
Eistar saka Rússa um tilraun til íkveikju í vopnafyrirtæki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd