Úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hafa veitt konu alvarlega áverka í íbúð sinni

Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á alvarlegri líkamsárás í íbúð fjölbýlishúss við Engihjalla í Kópavogi í gærkvöld.Karlmaður var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dag. Hann var handtekinn í gærkvöld grunaður um að hafa veitt konu alvarlega áverka í íbúð sinni við Engihjalla í Kópavogi.Í tilkynningu segir að maðurinn, sem var handtekinn á vettvangi, sé grunaður um að hafa veist að konu á fertugsaldri sem var í íbúðinni. Konan var flutt á slysadeild með alvarlega áverka en lögregla gaf ekki frekari upplýsingar um líðan hennar.Nágranni mannsins segist hafa orðið var við handtökuna í gærkvöld og segir talsverðan viðbúnað hafa verið við húsið. Maðurinn sé rúmlega fertugur Íslendingur sem búi einn í íbúðinni. Ná
Úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hafa veitt konu alvarlega áverka í íbúð sinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd