Í byrjun desember árið 2022 kom sonarsonur Kristjáns Péturs Þórðarsonar að afa sínum þar sem hann lá uppi í rúmi með opin augun. Hann brást ekki við þegar sonarsonurinn reyndi að tala við hann. „Þá hélt ég að hann hefði fengið heilablóðfall,“ rifjar sonarsonurinn, Páll Finnbogason, upp í nýjasta þætti Kveiks. „Ég hélt að hann væri bara að fara.“Kristján Pétur, fyrrverandi bóndi og oddviti í Barðastrandarhreppi á Vestfjörðum, var þarna staddur á hjúkrunarheimilinu Grund. Hann var kominn vel á tíræðisaldur og hafði búið á hjúkrunarheimilinu í rúm tvö ár. Á þeim tíma hafði hann stundum verið sljóvgaður og oft liðið illa. En þetta var allt öðruvísi.„Það var ekkert að honum fyrr en bara allt í einu þetta, hann er bara farinn út úr heiminum,“ segir ein af dætrum Kristjáns, Erla Bryndís.Maður sem