Flestir þeirra 39 starfsmanna sem sagt var upp störfum hjá LS Retail fyrir helgi störfuðu í þróunardeild félagsins, og má uppsagnir þeirra rekja til breytinga á mati Rannsóknastofnunar Íslands (Rannís) á því hvers konar þróunarverkefni á að styrkja. Fyrirtækinu hafa ekki borist skýringar á því hvers vegna verkefnum sambærilegum þeim sem áður hefur verið samþykkt að veita styrk í formi endurgreiðslna á skatti er nú hafnað.