Tvö tilboð í Djúpafjarðarveg

Tvö tilboð bárust í nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 km kafla yfir Djúpa- og Gufufjörð á Vestfjörðum.Innifalið í verkinu er bygging 210 metra langrar og 25 metra hárrar netbogabrúar yfir Djúpafjörð með steyptu gólfi.Áætlaður verktakakostnaður var rúmir 2,4 milljarðar króna og verklok ráðgerð 1. október 2028.Tilboð voru opnuð í dag. Ístak bauð tæpa sex milljarða í verkið og ÞG verktakar buðu tæpa 3,9 milljarða. 30 ÁRA AÐDRAGANDI Þessi framkvæmd á sér um 30 ára aðdraganda. Brúin mun stytta veginn milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um 21,6 kílómetra og er síðasti áfangi lagningar Vestfjarðavegar um Gufudalssveit á sunnanverðum Vestfjörðum.Verkið hefur tafist töluvert frá því að framkvæmdir hófust árið 2020. Áætlað var að þeim lyki 2024 og síðan 2026. Fyrr á árinu var áætluðum verklokum enn
Tvö tilboð í Djúpafjarðarveg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd