Breska lögreglan hefur greint frá því að ekkert sprengiefni hafi fundist í sendibílum sem vöktu grunsemdir nærri herflugvelli í suðvesturhluta Englands sem bandaríski herinn hefur til afnota. Hins vegar hafi nokkurt magn af bensíni fundist í tengslum við rannsókn málsins.