Samfylkingin eykur fylgisforskot sitt á Sjálfstæðisflokkinn um tæp þrjú prósentustig í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Á meðan Samfylkingin bætir við sig um prósentustigi minnkar fylgi Sjálfstæðisflokksins um tvö prósentustig.Könnunin var gerð allan septembermánuð og er því sú fyrsta sem Gallup gerir eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst, þar sem þjóðin hafnaði því að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.Samfylkingin er sem fyrr stærsti flokkurinn með tæpt 31% og fengi 23 þingmenn ef kosið yrði nú.Sjálfstæðisflokkurinn mælist með tæp 25% sem dygði til að fá 18 þingmenn kjörna.Miðflokkurinn mælist með 15%, rúmu hálfu prósentustigi minna en síðast og fengi miðað við það 11 þingmenn.Viðreisn mælist með 10,6 prósent, tæpu prósentustigi meira en síðast og fengi sjö menn kjör