Hluta þeirra tæplega níutíu starfsmanna sem var sagt upp störfum hjá Reykjavíkurborg í júní og ágúst hefur verið boðið að koma aftur til starfa.Formaður Sameykis segir ljóst að meirihlutinn hafi farið of geyst í uppsagnir.Illa gengur að fá rökstuðninga, sem Sameyki óskaði eftir, vegna fjölda uppsagna. SKORTUR Á SAMRÁÐI KEMUR Í BAKIÐ Á MEIRIHLUTANUM NÚNA Við uppsagnirnar bæði í júní og í ágúst var starfsfólki tilkynnt að ekki stæði til að ráða það aftur til starfa, segir Kári Sigurðsson formaður Sameykis.Hann segir að nú hafi hluta starfsfólksins verið boðnar tímabundnar stöður og sumum breytt launaumhverfi.Að mati Kára er ljóst að meirihluti borgarstjórnar hafi áttað sig á að uppsagnirnar hafi verið of umfangsmiklar.„Og það er okkar mat og það er mat starfsfólks borgarinnar að það hafi