Atvinnuvegaráðherra segir lagareldi þurfa að byggjast á vísindum, ábyrgri auðlindanotkun og trausti almennings. Þetta kom fram í ávarpi sem hún flutti á Lagarlífi, ráðstefnu um lagareldi sem haldin er í dag og á morgun.Á ráðstefnu um lagareldi í Hörpu sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra að heildarlöggjöf væri í vinnslu. Hún segir ágreining innan geirans vera meðal þess sem stóð í vegi fyrir afgreiðslu frumvarps á síðasta þingári.Gunnar Þórðarson, framkvæmdastjóri ráðstefnunnar, segir greinina ekki geta lifað við þá lagasetningu sem sé í gangi núna.„Hún er ekki í samkeppnishæf við Norðmenn og Færeyinga og ef hún á að geta blómstrað þá verður að taka á þessu. Þau verða að fá samkeppnisumhverfi þannig að fjárfestar séu tilbúnir til þess að leggja peninga í frekari uppbyggingu.“