Gershkovich um 16 mánaða fangelsisvist í Rússlandi: Segir stjórnvöld hafa veitt sig í gildru

Bandaríski blaðamaðurinn Evan Gershkovich, sem dæmdur var í 16 ára fangelsi í Rússlandi, segist hafa verið veiddur í gildru rússneskra stjórnvalda. Þetta segir hann í nýju viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC. Ný bók þar sem hann fjallar um fangavistina kemur út á fimmtudag. TÓK LENGRI TÍMA AÐ NÁ FANGELSINU ÚR GERSHKOVIC EN AÐ NÁ HONUM ÚR FANGELSINU „Það tók 16 mánuði að ná Evan Gershkovich út úr rússnesku fangelsi. Það tók fleiri, fleiri mánuði að ná rússneska fangelsinu út úr Evan Gershkovich.“ Á þessum orðum hefst viðtal The New York Times við Gershkovich í dag.Í draumum sínum var hann enn í pínulitla klefanum sínum, sem var rétt nógu stór fyrir einn fullorðinn mann til að standa og rétt svo nógu stór til að taka sex skref. Á vökustundum tók hann reiðisköst, fékk kvíðaköst og grét.
Gershkovich um 16 mánaða fangelsisvist í Rússlandi: Segir stjórnvöld hafa veitt sig í gildru

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd