Æfingagjöld geta numið yfir hálfri milljón króna á ári fyrir börn sem iðka knattspyrnu og körfubolta eftir að frístundastyrkir sveitarfélags hafa verið nýttir. Fimleikagjöld fyrir 6 til 7 ára börn á mánuði kosta rúmlega 21 þúsund krónur hjá Björk í Hafnarfirði en tæplega fjögur þúsund krónur hjá Völsungi á Húsavík. MUNAR 17 ÞÚSUND Á HÆSTA OG LÆGSTA VERÐI Á MÁNUÐI Þessar upplýsingar koma fram í verðsamanburði ASÍ og eru aðgengilegar á heimasíðu bandalagsins. Ný samantekt á fimleikagjöldum sýnir að kostnaður getur verið mikill þótt barn stundi aðeins eina íþrótt og samantektin leiðir í ljós mikinn verðmun á fimleikaiðkun fyrstu bekkinga. Lægsta mánaðargjaldið er hjá Völsungi, 3.750 krónur, en hæsta hjá Björk, 21.064 krónur. Munurinn á hæsta og lægsta gjaldinu er því rúmlega 17 þúsund krón