Til­boð hrika­lega hátt yfir kostnaðar­á­ætlun

Lokaáfangi vegagerðar um Gufudalssveit er í uppnámi eftir að tilboð reyndust himinhátt yfir áætluðum verktakakostnaði. Aðeins tvö tilboð bárust, það lægra frá ÞG-verktökum upp á nærri 3.888 milljónir króna. Það er um sextíu prósentum yfir kostnaðaráætlun, sem var upp á liðlega 2.431 milljónir króna. Lægra boðið er þannig 1.457 milljónum króna yfir kostnaðaráætlun.
Til­boð hrika­lega hátt yfir kostnaðar­á­ætlun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd