Karlmaður á fimmtugsaldri er í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna rannsóknar á alvarlegri líkamsárás í íbúð fjölbýlishúss í Kópavogi í gærkvöld. Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn, sem var handtekinn á vettvangi, sé grunaður um að hafa veist að konu á fertugsaldri, sem var í íbúðinni. Hún var flutt á slysadeild með alavarlega áverka, en lögregla gaf ekki frekari upplýsingar um líðan hennar. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir manninum síðar í dag.RÚV / Ragnar Visage