Ákærði sagður hafa skuldað hinum látna pening

Systir portúgalska mannsins sem fannst látinn á heimili sínu á Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra segir að ákærði í málinu hafi skuldað honum pening.Þetta kom fram við aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Georgios Ntentes frá Grikklandi er gefið að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést.Hann gaf skýrslu fyrir dómi við upphaf aðalmeðferðar í morgun. Eftir hádegi var rætt við systur hins látna, móður hans og kærustu.Systir hans og kærasta komu að honum látnum á heimili hans um hádegi 30. nóvember. Systir hans vissi að Georgios hefði ætlað að heimsækja hann 28. nóvember og segir það hafa verið því hann ætlaði að greiða vikugamla skuld upp á rúmar 1
Ákærði sagður hafa skuldað hinum látna pening

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd