Ríkisstjórn Spánar hefur brugðist við ákalli mótmælenda og kynnti í dag aðgerðir í húsnæðismálum. Mótmælin hófust þegar kona á níræðisaldri, Maricarmen Abascal, var þvinguð út af heimili sínu í Madríd í síðustu viku því hún hafði ekki lengur efni á að borga leigu.Aðgerðirnar fela í sér að útburður verði bannaður næstu fjögur ár, að leigusamningar framlengist sjálfkrafa, hertar reglur verði um skammtímaleigu og bann við kaupum „hrægammasjóða“ á húsnæði. RÍKISSTJÓRNIN HEFUR EKKI MEIRHLUTA Á ÞINGINU Spænska þingið þarf að samþykkja aðgerðirnar en ríkisstjórn Pedro Sanchez er minnihlutastjórn og hefur því ekki meirihluta á þinginu.Kveikjan að mótmælum síðustu daga var þegar Maricarmen Abascal var borin út úr íbúð sinni í miðborg Madrídar. Faðir hennar tók íbúðina á leigu 1956 og hún tók við