Útlit fyrir mikla rigningu

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna mikillar rigningar sem spáð er á Suðausturlandi og sunnanverðu miðhálendinu í nótt og á morgun.Viðvaranirnar taka gildi klukkan tvö eftir miðnætti og gilda til þrjú síðdegis á morgun.Veðurstofan spáir talsverðri eða mikilli rigningu. Henni fylgir aukið afrennsli og vatnavextir í ám og lækjum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum. Af því gæti hlotist tjón og raskanir á samgöngum auk þess sem álag á fráveitukerfi eykst. Veðurstofan hvetur fólk til að sýna aðgát og huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón. Fólk á hálendinu er hvatt til að sýna varfærni, sérstaklega við ár og vöð.
Útlit fyrir mikla rigningu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd